Námskeið og klúbbar

Bókmenntahópur FEB
Boðið er upp á námskeið í ýmsum sögum. Höfundur viðkomandi verks er oft fenginn til að ræða verk sitt við hópinn.
Á haustönn 2024 hittist bókmenntahópurinn þrisvar sinnum; 9. október, 30. október og 27. nóvember. Fyrsti tíminn er helgaður hinu vinsæla kveðskaparformi limrum en tveir síðari tímarnir bernskuminningum þriggja karla sem allir eru fæddir í kringum 1930. Bækurnar eru ólíkar en vöktu mikla athygli þegar þær komu út og fengu góða dóma. Þær draga upp mynd af mismunandi samfélögum og uppvaxtarskilyrðum barna í kreppunni á fjórða áratug síðustu aldar og fram undir miðja öldina.
9. október
Limrur. Þorsteinn Valdimarsson gaf út fyrstu limrubókina á íslensku, Limrur, árið 1965. Síðan þá hafa vinsældir limrunnar stöðugt farið vaxandi og margir góðir limrusmiðir litið dagsins ljós. Rætt verður um einkenni limrunnar og fjölbreytt yrkisefni. Engin ein bók liggur til grundvallar en víða leitað fanga og þátttakendur hvattir til að leyfa hópnum að heyra uppáhalds limrurnar sínar
30. október
Bernskudagar: minningar frá æsku og uppvexti (2013) eftir Óskar Jóhannsson kaupmann í Sunnubúðinni (1928–2024) og
Svipþing: minningaþættir (1998) eftir Svein Skorra Höskuldsson bókmenntaprófessor (1930–2002).
Þeir Óskar og Sveinn Skorri ólust upp við mjög ólíkar aðstæður og fóru ólíkar leiðir í lífinu. Óskar ólstu upp hjá einstæðri móður við kröpp kjör í litlu sjávarþorpi á Vestfjörðum en Sveinn Skorri í borgfirskum dal þar sem fleiri kynslóðir bjuggu undir sama þaki. Óskar var mikið hjá vandalausum en Sveinn Skorri bjó við meira öryggi á heimili foreldra sinna þótt ekki hafi ríkidæmi verið fyrir að fara. Í bókunum er því dregin upp ólík samfélagsmynd en eftirminnilegar persónurlýsingar prýða báðar bækurnar. Gaman er einnig að bera saman frásagnarstíl og efnistök höfundanna
27. nóvember
Jarðlag í tímanum: minningamyndir úr æsku (2011) eftir Hannes Pétursson skáld (f. 1931). Í minningamyndum Hannesar er dregin upp lifandi mynd af Sauðarkróki bernskuáranna og nærsveitum. Fjölmargar persónur koma við sögu, ekki síst fólkið sem hann ólst upp með og setti svip á samfélagið í þessum vaxandi kaupstað.
Leiðbeinandi: Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir
Uppbygging námskeiðs: Þrjú skipti á miðvikudögum kl. 13:00-15:00 dagana 9. október, 30. október og 27. nóvember
Verð: 8.000 kr. 

Íslendingasögur
Fornsagnanámskeið þar sem teknar eru fyrir mismunandi Íslendinga- og/eða fornaldarsögur.
Á haustönn 2024 verður Brennu-Njáls saga lesin.
Sagan er nokkuð löng og það er kannski dálítil bjartsýni að ætla sér að komast yfir slíkt stórvirki á tíu vikum, en sannarlega er það tilhlökkunarefni en eins og öllum er ljóst sem kynnt hafa sér Njálu er alltaf hægt að lesa hana einu sinni enn!
Margar útgáfur eru til af Njálu og bent er á að grípa bara þá sem hendi er næst.
Gríðarlega mikið hefur verið skrifað um Njálu út um allan heim. Í heimildaskrá aftast í Njáluútgáfu Máls og menningar frá 2008 (hentug skólaútgáfa) má sjá brotabrot af því mikla magni.
Í þetta sinn skal látið nægja að vitna í skemmtilega (og ísmeygilega) athugasemd prófessors Hermanns Pálssonar um meistaraverkið:
„Sköpun Njálu skiptir sögu þjóðarinnar í tvö tímabil; hið fyrra tekur yfir svo sem fjórar fyrstu aldirnar og lýkur í námunda við árin 1280–85. Eitt af sérkennum þessa tímabils er að þjóðin býr þá við algert Njálu-leysi, og ætti enginn sem fæst við rannsóknir á henni að láta sér úr minni líða, að höfundur hennar ólst upp í Njálu-lausu landi.“ (Uppruni Njálu og hugmyndir. Bókaútgáfa Menningarsjóðs. 1984, bls. 15.)
Leiðbeinandi: Baldur Hafstað
Uppbygging námskeiðs: Einu sinni í viku á föstudögum í 10 vikur hvert námskeið. Hóparnir verða tveir, sá fyrri kl. 10–12 (einnig í boði í gegnum fjarfundarbúnaðinn ZOOM) og sá seinni kl. 12:30–14:30.
Haustönn 2024 hefst föstudaginn 4. október 2024.
Verð: 22.500 kr.

Matarklúbbur FEB fyrir karlmenn 60+
Langar þig í matarklúbb með öðrum körlum?
Langar þig að læra að elda einfaldan mat?
Hefur þú lítið stuðningsnet og/eða ert óvanur að elda?
Eða langar þig bara að koma og vera með?
Þú þarft ekki að hafa reynslu af matseld til að taka þátt, bara að langa til að elda og/eða að læra að elda og að borða í góðum félagsskap.
Leiðbeinandi: Er i vinnslu.
Uppbygging námskeiðs: Einu sinni í viku í nokkrar vikur hvert námskeið. Í vinnslu er hvenær námskeiðið byrjar
Verð: kemur síðar

Myndlistarnámskeið
Almennt byrjendanámskeið í myndlist fyrir eldra fólk. Tilgangur námskeiðsins er fyrst og fremst að auka færni og þor þátttakenda til að fást við myndlist sem gefandi frístundaiðju.
Fjallað verður um skynjun og skoðun, skilning og sköpun sem samofna þætti í myndlistariðkun. Farið verður í nokkur grundvallaratriði myndgerðar, svo sem litafræði, myndbyggingu, fjarvídd, hlutföll mannslíkamans og formfræði tvívíddar og þrívíddar. Kynnt verður mismunandi tækni og rætt um hefðir og stefnur með vísan í listfræði og sögu eftir því sem við á. Þátttakendur leysa ýmis verkefni með skissubók og einföldum áhöldum svo sem blýanti, litblýöntum olíukrít og vatnslitum. Áhersla er lögð á samræður og skoðanaskipti í tímum.
Auk verkefna í tímum er reiknað með að þátttakendur vinni heimaverkefni milli kennslustunda og heimsæki söfn og sýningar meðan á námskeiðinu stendur.
Kennari: Bjarni Daníelsson
Efni og áhöld: Stór og góð skissubók, A4 eða stærri. Einföld teikniáhöld og litir að eigin vali (frekari efniskaup í samráði við kennara)
Uppbygging námskeiðs: Einu sinni í viku á mánudögum í 3 klst. í senn (frá kl. 13 – 16) í 10 vikur. Fyrsti tími á haustönn er mánudaginn 16. september 2024.
Verð: 43.000 kr.

Skákfélagið Æsir
Teflt er einu sinni í viku nær alla mánuði ársins á þriðjudögum kl. 13:00. Mjög góður hópur iðkar taflmennsku hér hjá FEB og er klúbburinn virtur á meðal skákmanna.
Formaður: Garðar Guðmundsson

Spænskunámskeið (fyrir byrjendur og lengra komna)
Spænskukennsla þar sem farið er yfir framburð og nokkur undirstöðuatriði í málfræði. Aðaláherslan verður á talað mál og orðaforða. Námskeiðunum verður skipt upp í þrjá hópa:
– Spænska 1 er ætluð byrjendum
– Spænska 2 er ætluð þeim sem eitthvað eru komnir af stað
– Spænska 3 er ætluð þeim sem lengra eru komnir og því freistandi að hafa kennsluna að öllu leyti á spænsku – eða eins mikið á spænsku hægt er.
Leiðbeinandi: Kristinn R. Ólafsson
Uppbygging námskeiðs: tvisvar sinnum í viku í 6 vikur hvert námskeið. Fyrsta námskeiðið á haustönn hefst mánudaginn 28. október 2024.
Verð: 24.000.