Þér er boðið á kynningu á nýju Menningarkorti Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum þann 10. júlí kl. 14.00
Dagskrá:
- Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður borgarráðs ávarpar gesti
- Gísli Jafetsson framkvæmdastjóri Félags eldri borgara ávarpar gesti
- Harpa Dögg Kjartansdóttir myndlistamaður leiðir gesti um sýningar á verkum Sölva Helgasonar og William Morris
RAUTT MENNINGARKORT REYKJAVÍKUR verður á kynningarverði, 1.500 kr. og frí kaka með kaffinu á kaffihúsi Kjarvalsstaða fyrir nýja korthafa.
Auk hefðbundinna tilboða og sérkjara munu handhafar rauða Menningarkortsins fá 15% afslátt í safnbúðum í júlí*
*Fastur afsláttur í safnbúðum er 10%
Nánari upplýsingar á menningarkort.is