Kór Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni

Það er ávallt glatt á hjalla í húskynnum FEB síðdegis á miðvikudögum en þá koma kátir félagar kórs FEB saman og syngja undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur.

Fyrsta æfing kórsins í haust verður miðvikudaginn 25. september kl. 16:30. Æft er einu sinni í viku allan veturinn með góðu jólafríi. Nýjum áhugasömum kórfélögum er bent á að vera í sambandi við Gísla Jónatansson, formann kórsins í síma 892 7170.

Munið: Söngur bætir, kætir og léttir lund!