ÍBÚÐIR BYGGÐAR AF FEB FÉLAGI ELDRI BORGARA Í REYKJAVÍK
SJÁ TEIKNINGU | SJÁ LOKATEIKNINGAR
Félag eldri borgara í Reykjavík hefur í gegnum tíðina byggt tæplega 500 íbúðir en þær eru Grandavegur 47, Eiðismýri 30, Árskógar 1-3, Árskógar 6-8, Hraunbæ 103, Hólaberg 84, Skúlagata 20 og Skúlagata 40.
Þinglýstar kvaðir á íbúðum byggðum af FEB:
- Íbúðirnar má aðeins selja félagsmönnum í Félagi eldri borgara (FEB), sem eru 60 ára eða eldri og í íbúðunum mega ekki aðrir búa en þeir og makar og uppkomin börn þeirra, nema stjórn FEB samþykki undanþágu frá því um stundarsakir, t.d. vegna fjölskylduástæðna eigenda.
- Íbúðareiganda er heimilt að leigja íbúð sína öðrum félögum í FEB, enda fullnægi leigutaki skilyrðum 1. töluliðar hér að ofan.
- Stjórn FEB sker úr um hvort væntanlegur kaupandi eða leigutaki fullnægi ofangreindum skilyrðum.
- Hljóti maki skráðs íbúðareiganda eða sambýlismaður/kona íbúð í arf eða við búskipti er honum heimili yfirtaka íbúðarinnar, búseta í henni og notkun, með þeim takmörkunum sem í 1. og 2. tölulið greinir, að undanskildu aldurskilyrðinu fyrir eigandann sjálfan.
- Erfingjum íbúðareiganda er heimilt eignarhald á íbúð fyrir arftöku, enda sé fullnægt skilyrðum 1. og 2. töluliðar um notkun.
Ofangreindar kvaðir gilda um eftirfarandi hús:
- Grandavegur 47 – byggt 1988-1989 (72 íbúðir)
- Skúlagata 40, 40a og b – byggt 1989-1991 (64 íbúðir)
- Hraunbær 103 – byggt 1990-1991 (47 íbúðir)
- Árskógar 1-3, byggt 2017-2019 (68 íbúðir)
- Árskógar 6 og 8 – byggt 1991-1993 (101 íbúð)
- Eiðismýri 30 – byggt 1994-1995 (26 íbúðir)
- Skúlagata 20 byggt – 1996-1998 (76 íbúðir)
Aðrar en svipaðar kvaðir gilda fyrir íbúðir sem byggðar hafa verið á vegum félagsins við Hólaberg – Fagraberg.
Þar er m.a. kveðið á um aldursmörk 60 ára og reglur er varðar útreikning verðs við sölu eignar. Kvaðir þessar voru kynntar upprunalegum kaupendum og koma fram í gögnum við sölu þeirra í upphafi.
Söluverð íbúðar má aldrei vera hærra en kostnaðarverð hennar, að viðbættri verðhækkun sk. vísitölu byggingarkostnaðar, en að frádreginni hæfilegri fyrningu eða 2% á ári.
Þinglýsingardómara ber að ganga úr skugga um lögmæti þeirra gagna sem tekin eru til þinglýsingar.
Yfirlit um húsnæðismál eldri borgara í Reykjavík, minnisblað frá 2015
Efni: Mannfjöldaþróun, þarfagreining vegna uppbyggingarstefnu Reykjavíkurborgar í húsnæðismálum m.t.t. þjónustuíbúða eldri borgara, þróun biðlista eftir þjónustu- og öryggisíbúðum sem velferðarsvið úthlutar í 2010 – 2014 og framtíðarsýn varðandi húsnæði fyrir eldri borgara.