Alla miðvikudaga kl. 10 frá september til maí, hittist hópur af vösku göngufólki hér hjá okkur í Stangarhyl 4 og leggur í klukkutíma göngu. Hlé þurfti að gera á þessu síðustu vikur vegna COVID-19 ástandsins. Nú er hins vegar farið að birta til og næsta ganga verður héðan frá Stangarhylnum miðvikudaginn 13. maí. Göngu-Hrólfar er opinn öllum félagsmönnum og við hvetjum fólk til að mæta því þetta eru hressandi göngur og frábær félagsskapur – sem jafnframt hlýðir Víði.
Á sumrin eru líka göngur en þær eru farnar frá ólíkum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Dagskrá sumarsins er eftirfarandi:
Göngu – Hrólfar
Gönguferðir á miðvikudögum klukkan 10:00, áætlun fyrir júní, júlí og ágúst 2020
Lagt af stað frá:
03.06. Olís Rauðavatni – (Kaffistaður: Olís)
10.06. Álafosskvos – (Kaffistaður: Bakaríið Mosfellsbæ)
17.06. Maríuhellar Heiðmörk sunnan til – (Kaffistaður: Golfskálinn Oddur)
24.06. Reynisvatn/heiði – (Kaffistaður: Golfskálinn Grafarholti)
01.07. Víkingsheimilinu við Traðarland – (Kaffistaður: Bakaríið Austurveri)
08.07. Korpúlfsstaðir – Mosfellsbær – (Kaffistaður: Bakaríið Mosfellsbæ
Strætó til baka leið 7
15.07. Heimörk við Olís Rauðavatn – (Kaffistaður: Olís)
22.07. Mógilsá Kollafirði – (Kaffistaður: Bakaríið Mosfellsbæ)
29.07. Kaldársel Valahnúkar – (Kaffistaður: Golfskálinn Oddur)
05.08. Hafravatn – (Kaffistaður: Golfskálinn Grafarholti)
12.08. Grafarvogur Olís Gufunes – (Kaffistaður: Olís)
19.08. Nauthóll Öskjuhlíð – (Kaffistaður: Bakaríið Austurveri)
26.08. Seltjarnarnes við Bakkatjörn – (Kaffistaður: Golfskálinn Nes)
Upplýsingar veita Holger í síma 843 5327 og Marteinn í síma 846 2154
Verum virk og tökum þátt