Hin sívinsæla sviðaveisla FEB verður haldin í sal félagsins í Stangarhyl 4, laugardaginn 2. nóv. frá kl. 12:00 -14:00. Húsið opnar kl. 11:30 en borðhald hefst kl. 12:00.
Það er Veislulist sem töfrar fram sviðakjamma, sviðasultu, saltkjöt og viðeigandi meðlæti. Örn Árnason leikari verður veislustjóri. Rúsínan í pylsuendanum verður svo þegar þau Diddú og Jónas Þórir koma og flytja nokkur lög. Þetta getur ekki klikkað, góður matur, góðir drykkir og einstök skemmtun.
Aðgangseyrir: 7.500 kr.
Hvar: Ásgarður, salur FEB í Stangarhyl 4
Hvenær: Laugardaginn 2. nóv. milli kl. 12:00 – 14:00
Veislustjóri/skemmtun: Örn Árnason
Tónlist: Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) og Jónas Þórir
Bókanir fara fram í gegnum bókunarsíðuna klik.is eða með því að ýta HÉR . Lokað verður fyrir bókanir að kvöldi 28. okt. 2024.