Er ekki kominn tími til að gera sér glaðan dag? FEB hefur fengið þá Örn Árnason og Jónas Þórir píanóleikara til fara með okkur í skemmtilegt fortíðarflug í tali og tónum. Mörg af þekktum íslenskum dægurlögum eiga uppruna sinn í revíum fyrri tíma, en kapparnir ætla að rifja upp þessar perlur í sal FEB í Stangarhyl…
Author Archives: dyrleifgud
FEB og Gísli Tryggvason lögmaður bjóða upp á frían fyrirlestur um erfðamál og erfðaskrár í sal FEB Stangarhyl 4, fimmtudaginn 30. september á milli kl. 15 – 16:30. Farið verður yfir almennar reglur erfðalaga um lögerfðir, skylduarf og hvenær helst er þörf á að gera erfðaskrá – svo sem þegar um er að ræða samsettar…
Neyðaróp úr hópi aldraðra Efnahagur stórs hóps aldraðra á Íslandi er svo bágborinn að jafnt undrun og hneykslun vekur. Fátæktargildrunnar liggja víða í kerfinu, húsnæðisleysi og jafnvel vannæring er viðvarandi vandamál, en þess utan býr hópurinn við heimsmet í skerðingum í almannatryggingakerfinu. Í þættinum KJÖR ALDRAÐRA á Hringbraut á sunnudagskvöld kl. 20:30 er dregin upp…
Okkar vinsælu enskunámskeið hefjast aftur mánudaginn 13. september. Við bjóðum upp á námskeið fyrir lengra komna og byrjendur ef þátttaka verður næg. Um er að ræða enskukennslu með áherslu á talað mál. Lagt er upp með að námið sé hagnýtt og að fólk nái að bjarga sér á spjalli við enskumælandi fólk, fremur en það…
Er ekki kominn tími til að dusta rykið af dansskónum? Okkar geysivinsælu dansleikir hefjast að nýju n.k. sunnudag 5. september kl. 20:00 í Ásgarði, Stangarhyl 4. Við vitum að margir hafa beðið óþreyjufullir eftir þessari stund og vonumst því eftir góðri mætingum. Við minnum á grímuskyldu og hvetjum alla til að fara eftir sóttvarnarreglum í…
Nú tökum við upp þráðinn að nýju eftir gott sumarfrí. Tíu vikna Íslendingasögunámskeið hefst föstudaginn 17. september þar sem kennarinn er, eins og áður, hinn eini sanni Baldur Hafstað. Nú á haustönn verður tekin fyrir stutt saga sem ber heitið Bandamanna saga, en síðan verður farið yfir valda kafla úr Sturlungu. Bandamanna saga er bráðskemmtileg…