Author Archives: dyrleifgud

Framundan er einstök sviðaveisla FEB

Hin sívinsæla sviðaveisla FEB verður haldin í sal félagsins í Stangarhyl 4, laugardaginn 2. nóv. frá kl. 12:00 -14:00. Húsið opnar kl. 11:30 en borðhald hefst kl. 12:00. Það er Veislulist sem töfrar fram sviðakjamma, sviðasultu, saltkjöt og viðeigandi meðlæti. Örn Árnason leikari verður veislustjóri. Rúsínan í pylsuendanum verður svo þegar þau Diddú og Jónas…

Hafa eldri borgarar það gott? Skoðum málið.

Grein eftir Sigurð Ágúst Sigurðsson, formann FEB sem birtist í Morgunblaðinu 4. okt. 2024 Fjárlagafrumvarpið sem nú er til umræðu á Alþingi gerir ráð fyrir því að frítekjumarkið til handa þeim sem aðeins fá greitt frá TR (fái ekki greitt úr lífeyrissjóðum) hækki úr 25.000 kr. í 36.000 kr. á mánuði. Fjármálaráðherra talar um 46%…

Kór Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni

Það er ávallt glatt á hjalla í húskynnum FEB síðdegis á miðvikudögum en þá koma kátir félagar kórs FEB saman og syngja undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fyrsta æfing kórsins í haust verður miðvikudaginn 25. september kl. 16:30. Æft er einu sinni í viku allan veturinn með góðu jólafríi. Nýjum áhugasömum kórfélögum er bent á að…

Ný námskeið í íslendingasögum og bókmenntum að hefjast.

Íslendingasögur/fornsögur Föstudaginn 4. október hefst nýtt 10 vikna fornsagnanámskeið. Nú er það Brennu-Njáls saga sem verður lesin. Sagan er nokkuð löng og það er kannski dálítil bjartsýni að ætla sér að komast yfir slíkt stórvirki á tíu vikum, en sannarlega er það tilhlökkunarefni en eins og öllum er ljóst sem kynnt hafa sér Njálu er…

Myndlistarnámskeið hjá FEB

Mánudaginn 16. september hefst að nýju almennt byrjendanámskeið í myndlist sem Bjarni Daníelsson kennir. Bjarni er lærður myndlistarmaður og kennari og starfaði um árabil við myndlistarkennslu og var m.a. skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1986 – 1994. Tilgangur námskeiðsins er fyrst og fremst að auka færni og þor þátttakenda til að fást við myndlist…

FEB-dansleikirnir byrja aftur sunnudaginn 18. ágúst

Nú hefst fjörið að nýju Sunnudaginn 18. ágúst, byrjum við aftur eftir sumarfrí með dansleikina okkar, en þeir byrja stundvíslega kl. 20:00. Við bjóðum sérstaklega velkomna alla nýja dansunnendur, en hlökkum að sjálfsögðu líka til að hitta þá dansunnendur sem mætt hafa reglulega. Dansleikirnir fara fram í sal FEB í Stangarhyl 4, 110 Reykjavík og auðvitað erum við með lifandi…