Tölvupóstur til félagsmanna 29. ágúst 2018

Ágæti félagsmaður
Nú er það heilsan og hreyfingin – það sem er í boði hjá félaginu. STERK OG LIÐUG leikfimi námskeið hefst mánudaginn 3. september kl. 11.30

Verður kl. 11.30 til 12.15 á mánu- og fimmtudögum. Verð fyrir þetta námskeið er aðeins kr 15.900 í 8 vikur. Skráning á feb@feb.is / síma 5882111
Námskeið fyrir dömur og herra eldri en 60 ára, sem geta ekki lengur stundað hefðbundna líkamsrækt. Allir tímarnir verða sérsniðnar að þörfum þátttakenda. Tímarnir munu byrja á léttri upphitun og við tekur einföld leikfimi til að örva blóðrásina og liðka okkur. Eftir það gerum við léttar rólegar styrkjandi æfingar með það sem markmið að rétta úr bakinu, bæta líkamsstöðu, minnka bakverki, verki í hnjám og mjöðmum.
Í lok tímans gerum við árangursríkar teygjur á meðan líkaminn er ennþá heitur til að lengja vöðvana og vinna gegn gigtarverkjum. Þetta námskeið verður sérsniðið fyrir fólk á besta aldri, sem er ungt í anda, en hefur ekki lengur líkama til að stunda hefðbundna líkamsrækt. Þú getur ennþá stundað markvissa þjálfun án þess að ofreyna liðamótin. Við þurfum að halda áfram að hreyfa okkur með hækkandi aldri til þess að viðhalda góðri líkamlegri og andlegri heilsu.
ZUMBA Gold™ 60+ dans og leikfimi byrjaði 20. ágúst – enn pláss í skemmtilegum hóp
8 vikna Zumba Gold á sama verði og síðast 16.900 kr. Á mánu- og fimmtudögum kl. 10.30. Kennari sem fyrr Tanya
Zumba Gold notar sömu formúlu og Zumba Fitness, en breytir danssporunum og lækkar hraðann, sem hentar betur dönsurum sem eru 60 ára og eldri. Þú getur tekið því rólega með Zumba Gold og skemmt þér konunglega í leiðinni. Tónlistin er jafn skemmtileg og í Zumba Fitness. Hentar jafnt konum sem körlum.
Gönguhópur alla miðvikudaga kl. 10.00 frá Stangarhylnum. Kaffi og rúnstykki á eftir.
Bara að mæta.
DANS alla sunnudaga kl. 20.00 í Stangarhylnum
Hljómsveit hússins. Veitingar við flestra hæfi. Góð skemmtun í skemmtilegum félagsskap.
Opið öllum bara að mæta, miðasala við innganginn.
SKÁK
Ekki má gleyma heilaleikfiminni. Teflt er alla þriðjudaga kl. 13.00.
Þetta er bara hluti af því sem í boði er hjá FEB.
Kynnið ykkur hið öfluga starf félagsins á feb.is / Facebook síðu
Félagsstarfið fer fram í húsnæði FEB að Stangarhyl 4
Næg bílastæði og greiðar strætisvagnasamgöngur
FEB er á Facebook – Líkaðu við FEB með því að smella á okkur hér

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *