Nýtt Menningarkort kynnt og slær í gegn

Liðlega 200 manns komu á Kjarvalsstaði í dag til að kynna sér rauða Menningarkortið 67+ í dag.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, staðgengill borgarstjóra, kynnti nýja kortið og Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, flutti stutta ræðu.
Nýtt fyrirkomulag tók gildi þann 1. júlí s.l.. Fyrir þá sem ekki þekkja til Menningarkorts Reykjavíkur þá er um að ræða árskort sem veitir endurgjaldslausan aðgang að öllum söfnum Reykjavíkurborgar, 2 fyrir 1 aðgang að einhverju safnanna í hverjum mánuði, auk tilboða og sérkjara hjá fjöldamörgum samstarfsaðilum í menningarlífinu. Nánar HÉR
Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, flutti stutta tölu. Ljósm. Silja Yraola

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *