|
Föstudagur, 03. september 2010 10:18 |
Ókeypis jógatímar fyrir félagsmenn FEB
Eldri borgurum stendur til boða ókeypis tímar í djúpslökun hjá Ástu Bárðardóttur jógakennara í húsnæði Styrks sjúkraþjálfunar að Höfðabakka 9 næstu tvær vikurnar, frá 6. sept. til 16. sept. Tímar eru á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 11:00 - 11:30 og 14:00-14:30.
Það þarf ekki að skrá sig heldur nægir að koma og gefa sig fram í móttöku.
Til að gefa smá mynd af hvað djúpslökun er þá er þetta nærandi slökun, ekki bara fyrir líkama heldur líka huga og anda. Í slökun hægist á öndun, hugurinn kyrrist og vöðvar slaka sem leiðir til minni spennu og meiri vellíðan. Hugur og líkami komast í jafnvægi og þú færð hvíld sem jafnast á við nokkra tíma svefn. Það má eiginlega segja að þú fáir hámarksslökun á lágmarkstíma sem eflir styrk, einbeitingu og orku. Það dregur úr áhyggjum, streitu, kvíða og sársauka og eftir stendur aukin vellíðan og heilbrigði.
Í slökuninni liggur fólk á dýnu á hvíldarstellingu (eða situr á stól ef það getur ekki legið á gólfi) með teppi vafið um þig, umhverfið er notalegt og róandi hljómlist í bakgrunni.
Höfðabakki 9 sjá leiðarlýsingu á vefslóð:
www.styrkurehf.is/greinalisti.php
Verið velkomin! |
|
|
Mánudagur, 30. ágúst 2010 11:24 |
|
Tilboð til félagsmanna á Hótel Rangá
|
|
Nánar...
|
|
Mánudagur, 16. ágúst 2010 11:09 |
|
Félagsstarfið er að fara í gang eftir sumarfrí. Fyrsti sunnudagsdansleikurinn var í gær 15. ágúst og mun bridds byrja í dag 16. ágúst. Göngu hrólfar munu ganga frá Stangarhyl miðvikudaginn 18. ágúst kl. 10.00 og svo á hverjum miðvikudegi eftir það. |
|
Miðvikudagur, 11. ágúst 2010 10:29 |
|
Vorum að uppfæra myndaalbúm. |
|
Mánudagur, 12. júlí 2010 13:09 |
|
Ferð 11.-14. ágúst: Arnarvatnsheiði, Húnaþing og Skagafjörður (4 dagar). Nokkur sæti laus - meira
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 9 |