|
Dagsferðir:
Í dagsferðum er þátttkendum ráðlagt að hafa með sér nesti.
Lagt verður af stað í allar dagsferðir frá bílastæði HÍ við Sæmundargötu - gegnt HÍ kl. 8.00 og frá Stangarhyl kl. 8.30
Búin 2. júní: Um Reykjanes: Garðskagaviti, Fræðasetrið, Hvalsneskirkja, Reykjanesviti og Bláa lónið.
ATH. Brottför frá Sæmundargöru kl. 9.30 og frá Stangarhyl kl. 10.00
Ekinn gamli vegurinn um Vatnsleysuströnd og Voga, yfir Vogastapa og gegnum Ytri-Njarðvík, Keflavík og Garð. Farið að gamla Garðskagavitanum og litast þar um, Fræðasetrið í Sandgerði heimsótt og farið í Hvalsneskirkju þar sem séra Hallgrímur Pétursson var prestur um hríð. Ekið framhjá Básendum sem Flóðið mikla er kennt við (1799), gengið yfir flekaskilin á milli Evrópu og Ameríku, skroppið út að Reykjanesvita, stoppað nokkrar mínútur við Gunnuhver og loks þegnar kaffiveitingar í Bláa lóninu og umhverfið skoðað af sérstökum útsýnispalli áður en haldið er til Reykjavíkur.
Félagsmenn greiða kr. 6.200 Aðrir greiða kr. 7.200
Innifalið í verði: Kaffiveitingar í Bláa lóninu, akstur og leiðsögn.
Búin 9. júní: Rangárþing: Hella, Oddi, Hótel Rangá, Múlakot og Fljótshlíðin.
ATH. Brottför frá Sæmundargötu kl. 9.30 og frá Stangarhyl kl. 10.00
Ekið til Hellu á Rangárvöllum þar sem ,,Hekla, handverkshús” verður sótt heim og handverkið skoðað. Síðan haldið að Odda og kirkjan skoðuð. Léttur hádegisverður snæddur ´Hótel Rangá. Ekið um Dímonarvegs yfir Markarfljótsaura að Stóra-Dímoni (Rauðuskriðu í Njálu) og áfram að Múlakoti í Fljótshlíð og um Fljótshlíðina til Hvolsvallar. Ekið til Eyrarbakka en í Gónhóli er verið að endurreisa gamalt þorp. Þar er einnig fornbílasýning, markaðstorg, krambúð og kaffihús.
Félagsmenn greiða kr. 7.300 Aðrir greiða kr. 8.400
Innifalið í verði: Léttur hádegisverður á Hótel Rangá, akstur og leiðsögn.
Búin 7. júlí: Hinar litskrúðugu Landmannalaugar.
Ekið austur yfir Þjórsá og beygt inn á Landveg hjá Vegamótum.Hjá fossinum Tröllkonuhlaupi í Þjórsá, stiklaði skessan yfir ána þegar hún ætlaði að hafa Gissur í Lækjarbotnum í matinn. Á móts við Búrfell er beygt inn á Dómadalsleið (Landmannaleið) og ekið um hraun- og vikurbreiður með Heklu, Valafell, Loðmund, Þóristind og fleiri fjöll á báðar hendur. Í Landmannalaugum er annáluð náttúrufegurð, litskrúðug líparítfjöll og svört hraun, heitar og kaldar uppsprettur og vinsæl sundlaug (heitur lækur). Í bakaleið er ekið að Ljótapolli og þaðan um Fjallabaksleið nyrðri um hraun og sanda framhjá manngerðum uppistöðulónum uns komið er að Hrauneyjum og loks um Þjórsárdal til Reykjavíkur.
Félagsmenn greiða kr. 8.500 Aðrir greiða kr.9.800
Innifalið í verði: Kaffihressing í Hrauneyjum, skálagjald, akstur og leiðsögn.
Búin 14. júlí: Norðan við Skjaldbreið og Hlöðufell.
Ekið er til Þingvalla og norður Kldadalsveg. Rétt norðan við vegamót Uxahryggja- og Kaldadalsvega er beygt inn á Skjaldbreiðarveg og ekið norðan við Skjaldbreið, Þórólfsfell og Hlöðufell, en í norðri gnæfa Þórisjökull, Langjökull og Jarlhettur. Eftir góða stund er komið á Kjalveg skammt norðan við Gullfoss. Á Gullfosskaffi bíða kaffiveitingar áður en haldið er til Selfoss og Reykjavíkur.
Félagsmenn greiða kr. 7.800 Aðrir greiða kr. 9.000
Innifalið í verði: Súpa, kaffi og kaka á Gullfoss-kaffi, akstur og leiðsögn.
18. ágúst: Fjallabak syðra, Emstrur og Markarfljótsgljúfur.
Fjallabaksleið syðri hefst hjá Kelum á Rangárvöllum. Ekið um Rangárbotna og Langvíuhraun, hjá Hafrafelli og Laufafelli, upp á Sátu og til Álftavatns. Frá Hvanngili er ekið um Emstrur, komið að Markarfljótsgljúfri, ekið hjá Einhyrningi og um Markarfljótsaura og Fljótshlíð til Hvolsvallar.
Félagsmenn greiða kr. 8.200 Aðrir greiða kr.9.500
Innifalið í verði: Súpa, brauð og kaffi á Hlíðarenda, skálagjald, akstur og leiðsögn.
8. sept. Grillveisla í Goðalandi.
Þórsmerkurvegur ekinn á bökkum Markarfljóts á leiðinni inn í Goðaland, komið að Jökullóninu undir Gígjökli og litið inn í Stakkholtsgjá.. Um hádegið eru pylsur grillaðar og farið í gönguferð áður en haldið er heimleiðis.
Félagsmenn greiða kr. 6.700 Aðrir greiða 7.700
Innifalið í verði: Grillveisla í Goðalandi, skálagjald, akstur og leiðsögn.
22. sept: Haustlitir í Skorradal.
ATH. Brottför frá Hlemmi kl. 13.00 og frá Stangarhyl kl. 13.30
Ekið til Þingvalla, um Uxahryggi og Lundarreykjadal og yfir Hestháls inn í Skorradal. Skógræktarsvæði skoðuð. Kvöldverður, skemmtiatriði og dans á veitingastaðnum Fossatúni á bakka Grímsár í Bæjarsveit.
Félagsmenn greiða kr. 9.900 Aðrir greiða kr. 11.400
Innifalið í verði: Kvöldverður í Fossatúni, skemmtiatriði, harmónikuleikur, dans, akstur og leiðsögn.
|