• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Listin að lifa Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 16. júní 2010 12:51

Tímarit Landssambands eldri borgara ,,Listin að lifa" er komið út. Sú breyting var einhliða ákveðin í þetta sinn af stjórn landssambandsins að senda blaðið ekki út til félagsmanna hinna 53 aðildarfélaga landssambandsins um allt land, þ.m.t. í Reykjavík. Þess í stað eiga félögin sjálf að sjá um dreifingu blaðsins til sinna félagsmanna. Langflest félög eldri borgara á landinu eru með undir 150 félagsmenn og eru  tiltölulega hæg heimatökin hjá þeim að dreifa blaðinu sjálf í hús í sínu sveitarfélagi. Öðru máli gegnir um fjölmennt félag eins og í Reykjavík, þar sem félagsmenn eru um 8.000 talsins en kostnaðurinn við útsendinguna myndi hlaupa á hundruðum þúsunda króna. Því hefur verið ákveðið að senda blaðið ekki í pósti að svo komnu máli heldur sameina útsendingu þess og 2. tbl. okkar eigin Félagstíðinda, sem áætlað er að komi út í september nk.

Hins vegar mun blaðið liggja frammi hér á skrifstofu félagsins að Stangarhyl 4 í sumar, fyrir þá félagsmenn sem geta nálgast það og sömuleiðis má lesa það inn á vefsíðu landssambandsins: www.leb.is.

 

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 16. júní 2010 13:23
 

Dagatal

September 2010
M T W T F S S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Viðburðir

No events