• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Göngu – Hrólfar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Göngu-Hrólfarnir koma  úr hugmyndabanka Steinunnar Finnbogadóttur. Hrólfarnir voru fyrst á ferð 1. apríl 1989. Þá birtist auglýsing um fyrirhugaðan gönguhóp og var tekin sem „aprílgabb", en aprílgabbið lifir enn. Nafnið Hrólfur merkir „hamingja" og það er hamingja fólgin í því að vera meðvitaður um eigin heilsu – gönguferðir eru heilsuvakning.

Undir stjórn Ernu Arngrímsdóttur frá 1989-1998 státuðu Hrólfarnir sig af að vera virkasti hópur FEB. Gönguhópurinn spretti úr spori hvern einasta laugardag, allan ársins hring. Gangan féll aðeins niður, ef jól eða nýársdag bar upp á laugardag!

Nú er gengið alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 frá Stangarhyl í um það bil 1 klukkustund svo á hópurinn góða stund í Ásgarði á eftir þar sem fólk fær sér kaffi og rúnstykki.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 20. október 2009 13:23
 

Dagatal

September 2010
M T W T F S S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Viðburðir

No events