| Síðdegisdans |
|
|
|
|
Þegar ömmurnar voru ungar tíðkaðist síðdegisdans á Borginni eða „restaurastjón." Þá flykktust þær allar á Borgina í heimasaumuðum kjólum eftir sniðum frá Vogue, á pinnaháum hælum og að sjálfsögðu með hatta. Borgin var fyrir stelpur úr sveitinni - líkust Þúsund og einni nótt! Brynhildur Olgeirsdóttir lýsti þessuá þennan skemmtilega hátt þegar hún byrjaði með síðdegisdansinn á sínum tíma. Nú dunar dansinn í Ásgarði annan hvern miðvikudag. Þar dansa ömmur og afar í anda gömlu síðdegisdansanna. Þangað kemur fólk. Fær sér kaffi. Spjallar saman. Hlustar á músik eða dansar. Alltaf eru einhver skemmtiatriði undir borðum, lesið, sungið eða dansað. Síðdegisdans Félags eldri borgara í Stangarhyl 4 – haustönn Munið annan hvern miðvikudag í Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 14 -16 undir stjórn Matthildar Guðmundsdóttur og Jóns Freys Þórarinsson
|
||
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. september 2010 11:42 |