| Snúður og Snælda |
|
|
|
|
Um leikfélagið (Snúður og Snælda) Var stofnað 20. janúar 1990 af Sigríði Eyþórsdóttur og Brynhildi Olgeirsdóttur. Snúður og Snælda er þróttmikið leikfélag sem telur um 20 virka félaga. Á hverju ári eru leikverk tekin til sýninga, ýmist gömul eða ný, allt frá stofnárinu 1990. Nokkrir innan leikhópsins hafa jafnvel skrifað leikverk byggð á gamla tímanum sem leikhópurinn hefur síðan spunnið fram. Má þar nefna Ástandsárin, Rauðu klemmuna og Í lífsins ólgusjó, söngleik með gömlu slögurum frá síldarævintýrinu á Siglufirði – geysilega vinsæl verk. Alltaf er jafn spennandi að sjá hvað Snúður og Snælda spinna fram af snældu sinni. Oft eru sýningar færri en áhorfendur vilja, eldra fólkið vill komast í frí á vorin, þá kalla ferðalögin! Brynhildur Olgeirsdóttir var fyrsti formaður leikfélagsins. Hún segir: „Tildrögin að stofnun félagsins eru skondin. Ég lét mér leiðast heima í lok 9. áratugs síðustu aldar, þá komin á eftirlaunaaldur. Þá sá ég auglýst framsagnarnámskeið hjá Sigríði Eyþórsdóttur, fór á námskeiðið og nærvera mín þar kveikti áhuga hjá Sigríði að stofna leikfélag eldri borgara. Fyrstu tvö árin snerust um framsögn og listina að læra að tala, en frá 1992 hafa verið sýnd ný verk árlega." Af hverju nafnið Snúður og Snælda? „Að sviðsetja leikrit er hálfgerður spunarokkur. Leikstjórinn er við fótafjölina og lætur allt snúast og þráðurinn fer upp á snælduna."
|
| Síðast uppfært: Mánudagur, 28. september 2009 23:59 |