• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Brids Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Bridsdeildin var stofnuð í september 1992 að frumkvæði þáverandi formanns FEB í Reykjavík Kristjáns Benediktssonar. Spilamennska í brids hefur síðan verið ríkur þáttur í félagsstarfinu.

Formaður deildarinnar nú er Helgi Hallgrímsson. Fyrsti formaðurinn var Eysteinn Einarsson, sem sat eitt kjörtímabil. Það gerði einnig næsti formaður Lárus Arnórsson. Árið 1994 tók Bergur Þorvaldsson við formennsku og sat í átta ár eða til 2002, síðan tók við Rafn Kristjánsson sem var í 2 kjörtímabil það til Helgi Hallgrímsson tók við.

Starfsemi bridsdeildarinnar er með þeim hætti að spilað er tvisvar í viku á mánudögum og fimmtudögum kl. 13-17.  Tvímenningskeppni er það keppnisform sem mest er notað. Þátttakendur geta mætt í þau skipti sem hentar þeim. Þátttaka í spilamennsku hefur yfir árin verið þannig, að 40-50 manns af báðum kynjum hafa yfirleitt spilað. Enn mæta nokkrir sem hafa verið með frá byrjun.

Félag eldri borgara sér bridsdeildinni fyrir húsnæði og annarri aðstöðu. Í upphafi var starfsemin til húsa að Hverfisgötu 105, en hefur verið í Ásgarði, Glæsibæ frá árinu 1998 þar til félagið flutti í núverandi húsnæði að Stangarhyl 4.

Brids er hugaríþrótt sem er holl, ekki síst fyrir eldri borgara sem eru hættir á hinum almenna vinnumarkaði. Í brids þurfa menn að hugsa rökrétt til að ná árangri. Einbeiting hugans er mikilvæg við að varðveita heilsuna. Þá er maður ekki að tala um þá ánægju sem spilið veitir. 

Spilað er á mánudögum og fimmtudögum kl. 13.30-17.00 og eru allir velkomnir.
 

Brids

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. september 2010 11:31
 

Dagatal

September 2010
M T W T F S S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Viðburðir

No events