• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Lengri ferðir 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Brottför frá bílastæði við Sæmundargötu gegnt Háskóla Ísland kl. 8.00 og Stangarhyl kl. 8.30 NEMA annað sé tekið fram.
Ath. Ferðir geta breyst vegna óviðráðlegra aðstæðna


Búin 21.-23. júní: Snæfellsnes: Slóðir Bárðar Snæfellsáss, Snorra goða og Guðrúnar Ósvífursdóttur.
21/6 Ekið frá Borgarnesi um Mýrar, þar fórst Pourquoi pas? á skerinu Hnokka, Víga-Styrr var drepinn á Jörva. Galdra-Loftur drukknaði úti fyrir strönd kirkjustaðarins Staðastaðar. Gist á Hótel Ólafsvík.
22/6 Ekið upp á Snæfellsjökul og og um stund í sérútbúnu farartæki. Komið að Arnarstapa, Hellnum og Dritvík. Á Rifi drápu Englendingar Björn hirðstjóra. Á kirkjustaðnum Ingjaldshóli er minnismerki um Eggert Ólafsson og Ingibjörgu, konu hans. Á bænum Fróðá gerðust Fróðárundrin, þegar selshaus þrengdi sér upp um gólfið og draugar heimtuðu mat sinn komið í Bjarnarhöfn og gengið stuttan spöl um hraungötuna sem Víga-Styrr lét berserkina ryðja. Gengið á Helgafell frá leiði Guðrúnar Ósvífursdóttur.
23/6 Siglt til Flateyjar og dvalið þar dagsstund, skoðuð listaverk Baltasar í kirkjunni, einnig gömul verslunarhús, Bókhlaðan og fleiri merkisstaðir. Siglt til baka og ekið heimleiðis.
Félagsmenn greiða kr.50.900 Aðrir greiða kr.58.600
Innifalið í verði: Gisting á Hótel Ólafsvík (1 nótt) og Hótel Stykkishólmi (1 nótt), morgunv. (2), kvöldv. (2), ferð um jökulinn í ca. 1 klst., sigling til/frá.Flatey, leiðsögn heimamanns og létt hádegishressing á Hótel Flatey, skoðunarferð í Bjarnarhöfn, akstur og leiðsögn.

Búin 28. júní – 1. júlí: Sprengisandur, Flateyjardalur, Fjörður, (4 dagar).
28/6. Ekið um Þjórsárdal að Hrauneyjum og þaðan um Sprengisand. Á leiðinni norður blasa Vatnajökull og Hágöngur við augum í austri, en Hofsjökull og Þjórsárver í vestri. Frá Nýjadal er ekið um Tómasarhaga, hjá Fjórðungsvatni og um Kiðagilsdrög og eftir það er Skjálfandafljót ekki langt undan. Stoppað við Aldeyjarfoss og komið að Goðafossi. Gist á Hótel Eddu, Stórutjörnum (2 nætur).
29/6. Ekið norður Flateyjardalsheiði og Flateyjardal að Skjálfandaflóa. Hér eru söguslóðir Finnboga sögu ramma (Brettingsstaðir, Eyri o.fl. örnefni). Flatey blasir við augum skammt undan ströndinni.
30/6 Ekið í sérútbúnum fjallabílum út í Fjörður, en svo kallast einu nafni Þorgeirs- og Hvalvatnsfjörður nyrst á Skaganum á milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa. Vegurinn liggur um Leirdalsheiði, Hávörður og Grenivíkurtungur. Við brúna yfir Gilsá stendur sæluhúsið Gil. Síðasta jörðin fór í eyði í febrúar 1944 þegar útför síðasta bóndans var gerð frá Þönglabakkakirkju. Ekið til Akureyrar og gist á Hótel Eddu.
1/7 Frá Akureyri er ekið til Varmahlíðar og Blönduóss, farinn hringur um Vatnsdal og komið að Þórhallastöðum í Forsæludal, þar sem Grettir glímdi við Glám. Skroppið að Kolugljúfri þar sem skessan Kola hafðist við. Þaðan er ekið sem leið liggur um Holtavörðuheiði til Borgarness og Reykjavíkur
Félagsmenn greiða kr. 66.100 Aðrir greiða kr.75.900
Innifalið í verði: Gisting á Hótel Eddu, Stórutjörnum og Akureyri, með morgunv. og kvöldv., sérferð út í Fjörður, nesti í 2 dagsferðum (2. og 3. daginn), skálagjald, akstur og leiðsögn.

Búin 9.-12. júlí: Vestfirðir: Kaldalón, Ísafjörður, Selárdalur, Látrabjarg (4 dagar)
9/7 Ekið um Bröttubrekku til Búðardals, um Arnkötludal og Steingrímsfjarðarheiði til
Ísafjarðardjúps. Skroppið að Kaldalóni. Ekið um nýju brýrnar yfir Reykjarfjörð og Mjóafjörð og um Djúpveginn til Ísafjarðarkaupstaðar. Gist á Hótel Eddu (2 nætur)..
10/7 Ekið til Bolungarvíkur, komið við í Ósvör og farið upp á Bolafjall, hvaðan sést langt inn í Djúp og Jökulfirði. Siglt til Hesteyrar við Hesteyrarfjörð, sem er vestastur Jökulfjarða.
11/7 Á leið til Látrabjargs er komið við á Hrafnseyri við Arnarfjörð þar sem Jón forseti fæddist 17. júní 1811.. Ekið til Bíldudals og út í Selárdal þar sem Samúel Jónsson vann listaverk sín, og þaðan um Tálknafjörð og Patreksfjörð vestur á Látrabjarg. Gist í Breiðuvík.
12/7 Komið við í Byggðasafninu á Hnjóti og farið niður á Rauðasand. Ekið um Kleifarheiði og Barðaströndina til Flókalundar og Bjarkalundar og þaðan til Búðardals, Borgardals og Rvíkur.
Félagsmenn greiða kr. 66.700 Aðrir greiða kr. 76.700
Innifalið í verði: Gisting á Hótel Eddu, Ísafirði (2 n.) og Hótel Breiðuvík (1 n.), og morgunverði, kvöldverðir (3), aðgangseyrir að Ósvör, Hrafnseyri og Hnjóti, sigling til Hesteyrar og kaffiveitingar í Læknishúsi, akstur og leiðsögn.

Búin 11.-14. ágúst: Arnarvatnsheiði, Húnaþing og Skagafjörður (4 dagar).
11/8 Ekið að Laugarbakka í Miðfirði og suður Miðfjarðarsveit að Arnarvatni hinu Stóra á Arnarvatns-heiði. Á Tvídægru glímdi Jón Hreggviðsson við tröllskessu og hafði hana undir. Í bakaleið er komið við á Bjargi, fæðingarstað Grettis Ásmundarsonar. Gist á Hótel Staðarskála
12/8 Ekið til Hvammstanga og fyrir Vatnsnes, komið við á Illugastöðum og í Borgarvirki og genginn stuttur spölur að Hvítserki. Ekið til Skagastrandar og fyrir Skaga, frá Selvík sigldi Kolbeinn ungi skipaflota sínum til móts við Þórð kakala á Húnaflóa 1244. Ekið um Gönguskörð til Sauðárkróks. Gist á Hótel Miklagarði á Sauðárkróki (2 n.).
13/8 Ekið að Grettislaug á Reykjaströnd, ekið um Hegranesið, komið að Hólum í Hjaltadal, skoðunar-ferð í dómkirkjuna og Auðunarstofu. Hofsós er einn elsti verslunarstaður landsins, þar er yfirlitssýning um fólksflutningana til Vesturheims og sérstök sýning um Stephan G. Stephansson.
14/8 Ekið um Efribyggðarveg og beygt inn á veg sem liggur um Mælifellsdal og Haukagilsheiði, hjá Aðalmannsvatni og á bakka Blöndulóns uns komið er á Kjalveg. Áð á Hveravöllum góða stund og loks ekið um Bláfellsháls til Gullfoss og Reykjavíkur.
Félagsmenn greiða kr.58.400 Aðrir greiða kr. 67.200
Innifalið í verði: Gisting á Hótel Staðarskála (1 nótt) og á Hótel Miklagarði, Sauðárkróki, (2 nætur), morgunv. (3), kvöldv. (3), skoðunarferð á Hólum, nesti á heimleið, akstur og leiðsögn.

20.-22. ágúst: Langisjór, Eldgjá, Lakagígar (3 d.) Nokkur sæti laus
20/8 Ekið um Þjórsárdal til Hrauneyja, um Fjallabak nyrðra til Landmannalauga og um Jökuldali upp á Grænafjall, ekið af Herðubreiðarhálsi um veg að Sveinstindi við Langasjó. Í bakaleið er komið í Eldgjá og ekið um Skaftártungu til Klausturs. Gist á Hótel Geirlandi í 2 nætur.
21/8 Ekið hjá Eintúnahálsi og stoppað við Fagrafoss á leiðinni upp að Laka og Lakagígum, farið að Tjarnargíg og fleiri gígum. Í bakaleið genginn spölur niður með Fjaðrárgljúfri.
22/8 Ekið um Landbrot og Meðalland til Víkur í Mýrdal. Komið við í Dyrhólaey og í Byggðasafninu í Skógum og ekið þaðan til Hvolsvallar og Reykjavíkur.
Félagsmenn greiða kr. 40.600 Aðrir greiða kr.46.700
Innifalið í verði: Gisting í 2 nætur á Hótel Geirlandi við Klaustur, morgun- og kvöldverðir, nesti í dagsferð til Laka, aðgangseyrir í Skógum, akstur og leiðsögn.

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 16. ágúst 2010 11:08
 

Dagatal

September 2010
M T W T F S S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Viðburðir

No events