• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Um félagið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Skrifstofa félagsins er í Stangarhyl 4, 110 Reykjavík.

Afgreiðslutími er kl. 10 – 16 alla virka daga. Sími: 588-2111, fax: 588-2114.

Framkvæmdastjóri: Sigurður Einarsson – Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. (í staðinn fyrir (hjá) setjið inn @ merkið, ef senda á tölvupóst til viðkomandi starfsmanns).
Gjaldkeri: Kristín Lilja Sigurðardóttir – Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Ritari, umsjón með félagaskráningu: Dagmar Bragadóttir – Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Umsjónarmaður Ásgarðs: Jóhanna Ragnarsdóttir – Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni er langstærsta félagið innan Landssambands eldri borgara með yfir 8 þúsund félagsmenn. Félagið var stofnað 15. mars 1986. Hlutverk þess er að gæta hagsmuna eldri borgara í hvívetna. Rétt til að verða félagsmenn eiga þeir sem hafa náð 60 ára aldri og einnig makar þeirra þótt þeir séu yngri.

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins, og skal hann haldinn í febrúar eða mars ár hvert. Stjórn félagsins er skipuð 12 aðalmönnum og 4 varamönnum. Stjórnin kýs úr hópi aðalmanna varaformann, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda sem mynda framkvæmdastjórn félagsins ásamt formanni.

Formaður er kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn. Helmingur stjórnar er kosinn ár hvert, þ.e. 6 aðalmenn og 2 varamenn sem sitja í stjórn í tvö ár. Næsta ár er hinn helmingurinn kosinn á sama hátt. Enginn stjórnarmaður má sitja lengur en fjögur ár samfellt í stjórn félagsins. Núverandi formaður er Unnar Stefánsson fyrrum deildarstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Blómleg starfsemi er rekin innan félagsins á mörgum sviðum. Hin síðari ár hefur verið lögð mikil áhersla á að gæta réttar eldri borgara og vinna að hagsmunum þeirra gagnvart stjórnvöldum. Fjölmargar nefndir og deildir eru starfsræktar sem sinna ýmist hagsmunamálum aldraðra eða félagsstarfi á vegum félagins.

Formenn félagsins frá upphafi:

  • Snorri Jónsson 1986-1988
  • Bergsteinn Sigurðarson 1988-1992
  • Kristján Benediktsson 1992-1995
  • Páll Gíslason 1995-1998
  • Ólafur Ólafsson 1998-2005
  • Margrét Margeirsdóttir 2005-2009
  • Unnar Stefánsson frá 2009
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 10. febrúar 2010 16:20
 

Afsláttarbók

Gerast félagi

Úr myndasafni

  • FEB - Árbæjarsafn
  • FEB - Árbæjarsafn
  • FEB - Árbæjarsafn
  • FEB - Árbæjarsafn
  • FEB - Árbæjarsafn
  • FEB - Árbæjarsafn
Joomla Flickr module by Bulletproof Templates - Joomla 1.5 templates, extensions, tutorials and custom services

Dagatal

September 2010
M T W T F S S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Viðburðir

No events