|
Kjarabaráttan er alltaf í brennidepli, enda mjög mikilvægt að fylgjast vel með hagsmunum eldra fólks þegar á eftirlaun er komið. Og alltaf þokast eitthvað áleiðis til góðs fyrir allt eldra fólk.
Stærra félag yrði sterkara og áhrifameira í hagsmunagæslunni. Það er þinn hagur að gerast félagi - og styrkja baráttuna.
Reykjavíkurfélagið vinnur náið með Landssambandi eldri borgara að hagsmunamálum þar sem það er langfjölmennasta félag eldri borgara á landinu. Fulltrúar frá báðum samtökum sitja samráðsfundi með Tryggingastofnun ríkisins og þingnefndum og kalla saman fundi ef þörf krefu
Helstu baráttumál FEB samkvæmt samþykktum aðalfundar í febrúar 2009 eru:
- að skattleysismörk verði hækkuð.
- að skattar á greiðslur úr lífeyrissjóðum verði þeir sömu og skattar af fjármagnstekjum.
- að frítekjumark á greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins verði 120 þúsund krónur vegna lífeyrissjóðs- og atvinnutekna.
- að stofnunum fyrir aldraða verði breytt í hjúkrunaríbúðir þar sem íbúar haldi sín fjárforræði, sjálfræði og hafi sitt einkarými.
- að fjölga búsetuúrræðum fyrir eldri borgara s.s. þjónustuíbúðum, leiguíbúðum og sambýlum.
- að beita sér fyrir því að koma á fót embætti umboðsmanns aldraðra svo fljótt sem auðið er.
- að endurskoðun á almannatryggingalögum verði hraðað.
- að reyna að koma í veg fyrir að lífeyrissjóðir falli í þá freistni að hætta fjármunum sínum í áhættusömum rekstri.
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 29. október 2009 13:35 |