|
Mánudagur, 12. júlí 2010 11:56 |
|
Skrifstofa félagsins verður lokuð frá 19. júlí n.k. opnum aftur 9. ágúst. Þeir sem eru að fara í ferðir á vegum félagsins og eiga eftir að greiða geta greitt inn á eftirfarandi reikning.
kt. 490486-3999 banki 0336-26-185
Óskum ykkur öllum gleðilegs sumars |
|
|
Mánudagur, 12. júlí 2010 11:45 |
|
Dagsferð 14. júlí n.k. Norðan við Skjaldbreið og Hlöðufell. Farþegar athugið að farið verður frá Sæmundargötu (fyrir framan HÍ) kl. 8.00 og Stangarhyl 4 kl. 8.30 |
|
Þriðjudagur, 22. júní 2010 08:57 |
|
Jónsmessugleði verður 24. júní n.k. í samstarfi við Árbæjarsafnið, mjög fjölbreytt dagskrá, söngur, dans og tónlist. Við hvetjum alla sem tök hafa á að mæta í þjóðbúningum.
|
|
Nánar...
|
|
Miðvikudagur, 16. júní 2010 12:51 |
|
Tímarit Landssambands eldri borgara ,,Listin að lifa" er komið út. Sú breyting var einhliða ákveðin í þetta sinn af stjórn landssambandsins að senda blaðið ekki út til félagsmanna hinna 53 aðildarfélaga landssambandsins um allt land, þ.m.t. í Reykjavík. Þess í stað eiga félögin sjálf að sjá um dreifingu blaðsins til sinna félagsmanna. Langflest félög eldri borgara á landinu eru með undir 150 félagsmenn og eru tiltölulega hæg heimatökin hjá þeim að dreifa blaðinu sjálf í hús í sínu sveitarfélagi. Öðru máli gegnir um fjölmennt félag eins og í Reykjavík, þar sem félagsmenn eru um 8.000 talsins en kostnaðurinn við útsendinguna myndi hlaupa á hundruðum þúsunda króna. Því hefur verið ákveðið að senda blaðið ekki í pósti að svo komnu máli heldur sameina útsendingu þess og 2. tbl. okkar eigin Félagstíðinda, sem áætlað er að komi út í september nk.
Hins vegar mun blaðið liggja frammi hér á skrifstofu félagsins að Stangarhyl 4 í sumar, fyrir þá félagsmenn sem geta nálgast það og sömuleiðis má lesa það inn á vefsíðu landssambandsins: www.leb.is.
|
|
Miðvikudagur, 09. júní 2010 10:27 |
|
Fundur með þátttakendum í ferð um Snæfellsnes verður 15. júní kl 13.30 að Stangarhyl 4. |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 2 af 9 |