|
Föstudagur, 11. desember 2009 16:02 |
|
Við viljum benda á minningarkort Félags eldri borgara sem hægt er að panta í síma 588 21 11
virka daga ml.kl. 10 - 16.
|
|
|
Miðvikudagur, 09. desember 2009 13:06 |
|

Pétur H. Ólafsson, einn af stofnendum Félags eldri borgara í Reykjavík, er látinn 89 ára að aldri. Um margra ára skeið var Pétur einn af helstu forsvarsmönnum félagsins bæði í stjórn og framkvæmdastjórn auk þess sem hann sinnti öðrum félagsstörfum innan FEB af miklu kappi. Pétur stóð fyrstur manna fyrir dansleikjum FEB, fyrst í Akoges salnum í Sigtúni og síðar í Glæsibæ þegar félagið flutti starfsemi sína þangað og loks í Stangarhyl, þar sem það er nú til húsa. Stóð Pétur ætíð vaktina á dansleikjunum. allt þar til á þessu ári.
|
|
Nánar...
|
|
Þriðjudagur, 08. desember 2009 10:24 |
|
Aðventuhátíð Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni fellur niður af óviðráðanlegum orsökum!
Aðventuhátíð FEB sem halda átti föstudaginn 11. desember nk. fellur niður vegna forfalla meðal þeirra sem fram áttu að koma á hátíðinni. Félaginu þykir þetta afar miður og ekki er vitað til að slíkt hafi komið fyrir áður. En óviðráðanlegar ástæður liggja að baki þessari ákvörðun félagsins og beðist er velvirðingar á því að svona skyldi hafa farið.
|
|
Fimmtudagur, 26. nóvember 2009 00:00 |
|
Félagsfundur með fulltrúum Reykjavíkurborgar
Föstudaginn 4. desember var haldinn opinn félagsfundur að Stangarhyl 4 með Jórunni Frímannsdóttur borgarfulltrúa og formanni Velferðasviðs Reykjavíkurborgar og Berglindi Magnúsdóttur forstöðumanni heimaþjónustu Reykjavíkur. Sjá nánar hér að neðan:
|
|
Nánar...
|
|
Miðvikudagur, 11. nóvember 2009 08:49 |
|
Föstudaginn 13. nóvember n.k. kl. 13.00 kynnti Oddný Sv. Björgvinsdóttir nýútkomna ljóðabók sína sem ber nafnið ,,Og lífsfjótið streymir". Oddný er félagsmönnum okkar vel kunn því hún var ritstjóri á blaðinu ,,Listin að lifa" í mörg ár. |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 8 af 9 |