|
Miðvikudagur, 13. janúar 2010 15:27 |
|
Föstudaginn 15. janúar kl. 14:00 hélt Ingibjörg Guðlaugsdóttir kynningu á könnun um hagi eldri borgara. Könnunin var hluti af lokaverkefni Ingibjargar í meistaranámi í mannauðsstjórnun við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands sem hún gerði vorið 2009. Úrtak könnunarinnar var fengið með því að senda fyrirspurn á alla þá félagsmenn FEB sem eru skráðir með netfang í félagskránni. Alls svöruðu rúmlega 100 manns. |
|
|
Mánudagur, 11. janúar 2010 13:10 |
|

Danskennsla fellur niður í kvöld 11. janúar 2010. Kennsla hefst aftur 15. febrúar og verður þá kennt fjögurra skipta námskeið, nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins þegar nær dregur.
|
|
Fimmtudagur, 07. janúar 2010 10:37 |
|

Nú er félagsstarf félagsins komið í gang á nýju ári. Dagskráin verður með sama hætti og í haust, Helgi Seljan byrjaði með söngvöku í gær miðvikudaginn 6. janúar og mun því síðdegisdansinn byrja næsta miðvikudag þ.e. 13. janúar kl. 14.00 og mun verða álfadans í hléi. Bókmenntahópurinn undir stjórn Ólafs Sigurgeirssonar mun hefjast föstudaginn 8. janúar kl. 13.00.
Sjá dagskrá |
|
Sunnudagur, 27. desember 2009 10:45 |
|
Skrifstofa félagsins verður lokuð milli jóla og nýárs, opnum aftur þriðujudaginn 5. janúar. Óskum félagsmönnum og velunnurum félagsins gleðilegra jóla. |
|
Sunnudagur, 27. desember 2009 10:43 |
|
Dansleikur verður haldinn sunnudaginn 27. desember kl. 20.00 í Ásgarði, Stangarhyl 4. Hljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi. |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 7 af 9 |