|
Mánudagur, 26. apríl 2010 15:40 |
|
Kynningarfundur um byggingu íbúða við Hólaberg 84 fyrir félagsmenn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
Fundur til kynningar á væntanlegum íbúðum Félags eldri borgara í Reykjavík að Hólabergi 84 (við hlið Menningarmiðstöðvarinnar í Gerðubergi) verður haldinn miðvikudaginn 28. apríl kl. 15.00 í D - sal Gerðubergs. Þar verður sagt frá framvindu við undirbúning byggingarinnar, hönnun íbúða og húss, auk þess sem skýrt verður frá hugmyndum um verð og stærð íbúða.
Allir áhugasamir eru velkomnir!
|
|
|
Þriðjudagur, 20. apríl 2010 08:18 |
 |
Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út bókina LÆKNIR Í BLÍÐU OG STRÍÐU sem er ævisaga Páls Gíslasonar læknis, skátahöfðingja, fyrrv. formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, og stjórnmálamann.
|
|
|
Nánar...
|
|
Fimmtudagur, 08. apríl 2010 14:00 |
|
Bókmenntahópur 9. apríl, kl. 13.00. Ólafur Haukur Símonarson kemur í heimsókn og les upp úr verkum sínum og spjallar við þátttakendur. Allir velkomnir. |
|
Þriðjudagur, 06. apríl 2010 09:00 |
|
Ný afsláttarbók hefur verið gefin út og er send félagsmönnum með skírteinunum.
|
|
Þriðjudagur, 06. apríl 2010 08:50 |
|
Félagstíðindi eldri borgara í Reykjavík er komið út og hefur verið sent félagsmönnum í félaginu.
ATH: Með Félagstíðindum er inntökubeiðni í Félag eldri borgara í Reykjavík og er það von okkar að sem flestir félagsmenn líti í kring um sig og finni nýjan félaga í félagið. Það má setja inntökubeiðnina ófrímerkta í póst. |
|
Nánar...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 4 af 9 |