FERÐIR FEB INNANLANDS 2019 – Allt bókanlegt á feb@feb.is / síma 5882111

31. maí – 1. júní Borgarfjörður – Dalir – Snæfellsnes 31. maí – 1. júní 2019 Fararstjóri og leiðsögumaður Kári Jónasson. Verð kr 39.500 í tvíbýli.
11. – 14. júní Vestfirðir – Söguferð í tengslum við lestur Íslendingasagna – uppselt biðlisti. Farið um sögusvið Vestfjarða. Gisting á Reykjanesi, Ísafirði og Patreksfirði. Skipuleggjendur Magnús Sædal, Baldur Hafstað og Gísli Jafetsson.
2. júlí Vestmannaeyjar Dagsferð með rútu og nýja Herjólfi. Skoðunarferð um eyjuna og fleira 2. júlí. Fararstjóri Kári Jónasson. Verð kr 15.500.
10. – 13. ágúst Ferð um Sprengisand í Fjörðu, Flateyjardal og Siglufjörð Fimmta árið í röð sem við höldum á þessar slóðir. Alltaf jafn vinsæl ferð og selst fljótt upp. Fararstjórar Gísli Jafetsson og Gísli Jónatansson. Verð kr 105.000 fyrir tvíbýli og 122.000 fyrir einbýli.
8. ágúst Fjallabaksleið nyrðri 8. ágúst Ferðin tekur heilan dag og fer eftir ástandi vega og vegaslóða enda erum við þar sem náttúran er hvað hreinust og fegurðin hvergi fegurri. Fararstjóri Kári Jónasson. Verð kr. 16.000.
4. – 5. sept. Töfrar Suðurlands að Breiðamerkurlóni Tveggja daga ferð í 4.- 5. september. Gisting á Smyrlabjörgum. Fararstjórar Kári Jónasson og Steinþór Ólafsson. Verð kr. 39.000.
Allt um ferðir FEB á árinu 2019 er að finna HÉR
 
 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *