Áfall

Sigríður Snæbjörnsdóttir varaformaður Félags eldri borgara
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni er eitt fjölmenn-
asta félag landsins. Ríflega 12.000 greiðandi félagsmenn til heyra því. Eitt af fjölmörgum hlut verkum Félags eldri borgara (FEB) er að vinna að úrbótum í húsnæðismálum fyrir eldri borgara. Til langs tíma hefur FEB byggt fjölbýlishús fyrir félagsmenn með góðum árangri og hefur það alltaf verið gert á kostnaðarverði og aldrei annað staðið til með þennan hluta starfseminnar.
Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að FEB hefur verið að byggja 68 íbúðir í tveimur blokkum við Árskóga 1-3. Þegar komið var að afhendingu íbúðanna um mánaðamótin júlí/ágúst, kom í ljós að tæp-lega 400 milljóna króna halli var á framkvæmdunum.
Hvað fór úrskeiðis?
Eftir mikla vinnu bæði stjórnar FEB og aðkeyptra sérfræðinga, kom í ljós að hallinn orsakaðist fyrst og fremst af vantöldum fjármagnskostnaði og lágu þau mistök hjá byggingarnefnd félagsins. Þessi vanreiknaði fjármagnskostnaður fór því miður fram hjá öllum þeim eftirlitsaðilum sem að málinu komu.
Þetta er augljóslega mikið áfall fyrir kaupendur íbúðanna og einnig fyrir okkur í stjórn félagsins. Félagið sem hefur lagt metnað sinn í að skila verkefnum vel af sér, mátti nú horfast í augu við að eitthvað alvarlegt hafði farið úrskeiðis. Þessar vikur sem liðnar eru frá því að hallinn kom í ljós hafa einkennst af látlausri vinnu til að kanna hvernig þetta gat gerst og er henni hvergi lokið. Það er ekki síður mikilvægt að finna leiðir til að lágmarka skaðann fyrir kaupendur íbúðanna.
FEB starfar án hagnaðarsjónarmiða
Félag eldri borgara starfar án þess að hagnaðarsjónarmið séu í fyrir- rúmi og á því í enga sjóði að sækja. Ef ekki tekst að selja íbúðirnar á kostnaðarverði blasir við að félagið fer í greiðslustöðvun og/eða gjaldþrot. Þá munu 12 þúsund félagsmenn líða fyrir þessi mistök fyrir utan þau ómældu óþægindi sem kaupendur hafa nú þegar orðið fyrir.
Ákveðið var að freista þess að fá kaupendur til þess að taka þennan halla hlutfallslega á sig þannig að heildarverð allra íbúða næði upp í kostnaðarverð sem kom að sjálfsögðu illa við fólk eftir að hafa gert ráð fyrir lægra verði og er auðvelt að skilja vonbrigðin.
Eftir samningaviðræður við framkvæmda- og fjármögnunar- aðila tókst að ná samkomulagi um að lækka hallann úr 400 milljónum króna niður í 250 milljónir króna og var verð íbúða þá aftur lækkað sem því nam, eða um tæp 40% frá fyrri hækkun.
Nú er því verð íbúðanna komið 5% niður fyrir kostnaðarverð og um 17-20% niður fyrir markaðs- virði sambærilegra íbúða á frjálsum markaði.
Verkefni stjórnar
Stjórn félagsins tekur þetta mál mjög alvarlega og mun leita allra leiða til að komast að því hvernig þetta gat gerst um leið og félagið vinnur að frekari lausnum til að auðvelda kaupendum að takast á við þessi óvæntu útgjöld. Því miður eru þetta ekki fyrstu mistökin sem eiga sér stað í byggingaframkvæmdum hérlendis og væntanlega ekki þau síðustu heldur. Það er þó bót í máli fyrir kaupendur að íbúðirnar eru seldar undir kostnaðarverði.
Niðurstaðan er að félaginu urðu á alvarleg mistök, það er óumdeilanlegt. Margar spurningar hafa vaknað. Hvernig gat þetta gerst og af hverju tók enginn eftir neinu fyrr en að verkinu var að mestu lokið? Útreikningarnir höfðu farið í gegnum hendur margra lærðra aðila á viðurkenndum og virtum stofnunum og félögum. Vonandi mun óháð endurskoðun á málinu leiða í ljós svörin við þessum og fleiri spurningum.
Nú hafa flestir kaupendur samþykkt nýtt verð íbúðanna og margir eru þegar fluttir inn. Það er von okkar í stjórn FEB að íbúar Árskóga 1 og 3 muni, þrátt fyrir þessa leiðu uppákomu, njóta þessara góðu íbúða um ókomin ár

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *